Æbi Rokk

Þetta er bara gaman.

Færslur: 2010 Nóvember

18.11.2010 13:17

Ótitlað

Sölumaður nokkur var á ferðalagi um sveitir Finnmerkur, að selja skordýrafælur. Hann kemur að bóndabæ nokkrum nálægt Mazi og segir við bóndann: "Herra minn, þessi skordýrafæla er svo öflug að þú verður aldrei bitinn aftur, ég ábyrgist það,"

Kálbjörn bóndi var efins. "Ungi maður. Ég skal gera þér tilboð. Ef ég fæ að binda þig allsberan við staur hérna úti á túni, útbíaðan í þessari skordýrafælu og þú sleppur alveg við bit í svona 4 - 5 klukkutíma, þá skal ég kaupa 2 kassa af þér."

Sölumaðurinn var himinlifandi. Þeir fóru saman út á tún, sölumaðurinn klæddi sig úr öllu saman og Kálbjörn bóndi spreyjaði skordýrafælunni á hann hátt og lágt. Þessu næst batt hann sölumanninn við staurinn. 5 tímum seinna kemur bóndinn að sölumanninum, þar sem hann hangir gersamlega örmagna á staurnum, fölur, móður og algerlega búinn að vera. Samt ekkert bitinn.

Kálbjörn var hissa á þessu: "Félagi, hérna hangir þú og lítur hörmulega út, en ekkert bit. Hvað gerðist eiginlega?"

Sölumaðurinn lítur þreytulega upp og segir: "Í öllum Guðs bænum. Eiga þessir kálfar enga mömmu!!!"

18.11.2010 13:16

Ótitlað

Kálbjarnarhjónin þrömmuðu til séra Jimmy´s og fóru fram á skilnað."Jahá og hver er ástæðan" fyrir skilnaðinum í þetta sinn " spyr séra guðsmaðurinn ."Grimmdarleg og ómanneskjuleg hegðun hanns segir Miu. Prestur biður hana að útskýra þetta nánar."Sko" kjökrar Mia "Alltaf þegar hann dettur í það o...g fer á fyllerí , dettur honum eitthvað fáránlegt í hug, en núna fór hann yfir öll mörk !Um síðustu helgi datt hann í það , þá batt hann mig við rúmið, setti á mig hænugogg, smurði mig með lýsi og neyddi mig til að syngja "Gleðibankann"!! Mörgum mörgum, sinnum !!!" Guð hjálpi mér !!! ". hrópar séra presturinn upp . þetta er skelfilegt að heyra !" Já segir Mia kjökrandi... hann veit sko alveg að ég HATA ÞETTA LAG !!!

18.11.2010 13:16

Ótitlað

Kálbjarnarhjónin ákváðu að prófa að krydda aðeins kynlífið upp hjá sér og keyptu nokkra smokka með nokkrum bragðtegundum. Mikill spenningur er hjá þeim allan daginn, svo upp í rúm er sá litli var sofnaður, Svo segir Kálbjörn : Elskan nú slekk ég ljósin og set einn á og svo reynir þú að geta hvaða bragð þetta er. "ok æðislegt" segir Mia æst. Nú svo slokknar ljósið, og hann skríður upp í, eftir smá stund segir Mia "umm tja,,, já já þetta er þessi danski ostur hvað heitir hann aftur ? já Gamle Ole" ..."Hei ! róleg............... elskan" segir Kálbjörn , "ég er ekki búinn að setja neinn á ennþá".

06.11.2010 11:39

Betri verkmenn



Jónas setti upp verksmiðju í heimabæ sínum og fór að ráða starfsmenn. Hann auglýsti í staðarblaðinu og tók fram að hann ætlaði bara að ráða kvænta karlmenn. Kvenréttindafrömuður bæjarins sá þessa auglýsingu og fannst rétt að tala við Jónas tveim hrútshornum. Hún hringdi í hann og spurði hann "Af hverju ætarðu að ráða bara kvænta karlmenn? Er það vegna þess að þú telur konur aumari, heimskari,
geðstirðari . eða hvað er málið? "Nei, alls ekki, kona góð," sagði Jónas. "Það er vegna þess að þeir kunna að hlýða skipunum, eru vanir að láta traðka á sér, vita hvenær þeir eiga að halda kjafti og fara ekki í fýlu þegar ég öskra á þá."
  • 1
clockhere

Um mig

Nafn:

Ævar Þórisson

Farsími:

896-8803

Afmælisdagur:

8 maí 1953

Heimilisfang:

Heiðarvegur 32

Staðsetning:

Vestmannaeyjar

Heimasími:

481-2020

Faðir:

Þórir Lárusson

Móðir:

Þórunn Benjamínsdóttir

Önnur vefsíða:

123.is/abi/

Tenglar

Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 145805
Samtals gestir: 35096
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:49:23