Æbi Rokk

Þetta er bara gaman.

Flokkur: Jólagaman.

12.12.2009 01:28

Ótitlað


Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

07.01.2008 21:55

Jólin búinn.



Afi nú geta þessir jólasveinar farið upp á fjall.

27.12.2007 22:27

Norskir sveinar

 Norskir Jólasveinar farnir að koma til Eyja.

Þeir eru kallaðir Nystissen.


Þeir hafa tekið sér bólfestu við bæji og tjörn og eru bara nokkuð góðir með sig.

24.12.2007 13:13

Jólakveðja.



Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár   








24.12.2007 13:10

Kertasníkir


Kertasníkir

Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.


23.12.2007 13:08

Ketkrókur


Ketkrókur

Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag.-
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.


22.12.2007 13:05

Gáttaþefur


Gáttaþefur

Ellefti var Gáttaþefur
-aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.


21.12.2007 12:53

Gluggagægir

Gluggagægir

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.


20.12.2007 21:12

Bjúgnakrækir



Bjúgnakrækir

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.


19.12.2007 21:02

Skyrgámur




Skyrgámur

Skyrgámur sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.


18.12.2007 11:35

Hurðaskellir



Hurðaskellir


Sjöundi var Hurðaskellir,
-sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.


17.12.2007 21:57

Askasleikir.



Askasleikir


Sá sjötti Askasleikir,
var alveg dæmalaus.-
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.


16.12.2007 16:08

Pottaskefill.



Pottaskefill


Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku’upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti’ ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.


15.12.2007 14:14

Þvörusleikir.



Þvörusleikir


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.


14.12.2007 18:46

Stúfur.



Stúfur


Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


clockhere

Um mig

Nafn:

Ævar Þórisson

Farsími:

896-8803

Afmælisdagur:

8 maí 1953

Heimilisfang:

Heiðarvegur 32

Staðsetning:

Vestmannaeyjar

Heimasími:

481-2020

Faðir:

Þórir Lárusson

Móðir:

Þórunn Benjamínsdóttir

Önnur vefsíða:

123.is/abi/

Tenglar

Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 145805
Samtals gestir: 35096
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:49:23