Æbi Rokk

Þetta er bara gaman.

Flokkur: Svartagengið

02.03.2008 13:13

Svartagengið klikkar ekki.

Það er sunnudagur 2 mars og ég var alveg viss um að þeir í svartagenginu kæmu ekki vegna þess að það er ófært í Vestmannaeyjum .það er svo mikil  snjókoma , en viti menn þeir mættu.Sigursteinn kom fyrstur síðan heyrðum við í snjóruðningstæki og útúr því vallt Óskar sem var hirtur upp á miðri leið og svo birtist Gretar. Kristmann lét vita að ófært væri í Hrauntúni og ekki hundi út sigandi. Siggi Gogga lokaði símanum sínum og skreyð undir feld hjá sinni heittelskuðu og bað hana um að setja gamlar veður fréttir á svo hann hætti að snjóa.








Sigursteinn

Óskar

Gretar








Ákveðið var að setja fána á Óskar svo hann færi sér ekki að voða í göngunni,
eins og þið vitið þá er er búið að gefa út viðvörun um að snjóskaflar séu allt að 160cm á hæð svo fáninn ætti að sjást.




















Og þá er að leggja af stað út í fjörið.























Sjá myndaalbum ( snjór og meiri snjór )










10.02.2008 21:13

Þorrablót SG 9 feb 2008

Þorrablót SG haldið 9 febrúar 2008.



Ásgeir Þorvaldsson hinn eini og sanni samdi þennan borðsálm sem fluttur var áður en borðhald hófst. Þeir sem vilja heyra hann fluttan í beinni geta farið á Myndbönd og ´dáðst af fluttningi hans.

Borðsálmur.

Í skúrnum er oft skemmtilegt að vera
Svarts gengið heldur þorrablót.
Púnga og bagga búið er að skera
Brátt fá allir sér í annan fót.

Staupi og Skondra eru búin að elda
Svið og hangilæri voða feitt
Og undan hrút sem búið er að gelda
Allir fá sér kviðsvið út í eitt.

Kannski vakir Óskar voða lengi
En varla lengur en til klukkan eitt.
Hann sofnar út frá öli og súru rengi
Svo dreymir hann um hangikjötið feitt.

En áður en að kellingarnar hljóða
Og kallarnir fá fylliríissótt
Þá skálum við í skúrnum okkar góða
Og skemmtum okkur fram á miðja nótt
.

09.04.2007 12:59

Glatt á hjalla þegar ? mætir á svæðið.

  Það er alltaf fjör þegar Sigurður Ingi mætir í skúrinn, það er allveg með ólíkindum hvað hann hefur gott tak á að ræða bakkafjöru.
Hann kemst svo vel frá öllu að það veður einginn reiður  það hittnar bara í sumum.

22.01.2006 13:19

Sunnudagur

Í dag var vel mætt í göngu enda von á góðum veitingum. Það er svo skrítið að þegar von er á pela þá kemur alltaf einhver úr Reykjavík. Nú birtist Sigurður Íngi og var nokkuð duglegur við pelann bara lítið í einu en nokkuð mörg , sem beturfer var örlítið eftir handa okkur hinum.Mættir voru

15.01.2006 15:22

Sunnudagur

Eftir að Geiri múr kenndi mér þessa bloggdellu og fl verður allt skráð aðalega á sunnudögum því þá kemur Svartagengið í kaffi kl.10,30 eins og það hefur gert síðustu 15 ár.Svartagengið er göngu hópur og djammaralið á hinum ýmsu sviðum. Heldur Þorrablót Árshátíð Vorfagnað fer saman á IBV leiki og sækir súpufundi á hverjum þriðjudegi kl 12,00 á veitingarstaðnum Lanternu það er nóg að gera hjá þessum félagsskap. Sjá myndamöppu.Mættir í kaffigöngu. Gretar. Kristmann. Gísli. Óskar. Ævar. ATH Óskar kom með Coniak og hákarl.Félagsmenn á sem staddir eru á Grand Canaría ´Sigursteinn. Guðmundur og Stefán gengu út að Vita og tóku leigubíl til baka, skrifað og ekki hægt að breyta.

  • 1
clockhere

Um mig

Nafn:

Ævar Þórisson

Farsími:

896-8803

Afmælisdagur:

8 maí 1953

Heimilisfang:

Heiðarvegur 32

Staðsetning:

Vestmannaeyjar

Heimasími:

481-2020

Faðir:

Þórir Lárusson

Móðir:

Þórunn Benjamínsdóttir

Önnur vefsíða:

123.is/abi/

Tenglar

Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 145805
Samtals gestir: 35096
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:49:23